Kerfisáhætta á fjármálamörkuðum með hliðsjón af fjármálakreppunum 1929 og 2008 ; Systemic Risk on Financial Markets with reference to the Economic Collapses 1929 and 2008
2020
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er kerfisáhætta á fjármálamörkuðum. Kerfisáhættu má í einföldu máli lýsa sem hættu á keðjuverkandi falli fjármálafyrirtækja. Þessi keðjuverkun veldur síðan yfirleitt auknu atvinnuleysi og skertu framboði fjármagns og hefur því áhrif á samfélagið allt. Lítið hefur verið skrifað um þetta hugtak á Íslandi á sviði lögfræði. Þrátt fyrir það gilda fjölmargar reglur um þátttakendur á fjármálamarkaði og má því ætla að lög og reglur hafi mikil áhrif á þá og þar af leiðandi einnig myndun kerfisáhættu. Þessi ritgerð einblínir því á þessu tengsl. Í þessu skyni verður farið yfir fjármálakreppurnar sem urðu 1929-1933 og 2008. Þar verður farið í stuttu máli yfir orsakir og afleiðingar kreppanna í því skyni að varpa ljósi á hvað hefur í gegnum tíðina myndað kerfisáhættu. Ljóst er að fjármálakreppur eiga sér ávallt margþættar orsakir og verður því ekki gerð tilraun til að lýsa þeim með tæmandi hætti þótt tæpt verði á helstu atriðum. Þá verður lögð sérstök áhersla á þau atriði sem sameiginleg eru með kreppunum tveimur. Þá er einnig gerð grein fyrir hugtakinu kerfisáhætta ásamt því að kannað er hvort setja eigi lög til að draga úr kerfisáhættu. Að því loknu eru réttarheimildir ESB og innleiðing þeirra í íslenskan rétt til skoðunar. Þá verður gerð grein fyrir aukinni samræmingu innan ESB og EES auk þess sem skoðuð verða áhrif reglna Evrópusambandsins, um frjálst flæði fjármangs og stofnsetningarrétt, á kerfisáhættu. Meginrannsókn ritgerðarinnar er svo í kafla 6 þar sem vikið er nánar að einstökum reglum og áhrifum þeirra á kerfisáhættu. Grein er gerð fyrir helstu markaðsbrestum á fjármálamarkaði sem geta valdið kerfisáhættu. Þeir markaðsbrestir sem valdið geta kerfisáhættu og kannaðir verða í ritgerðinni eru upplýsingarbrestur, hagsmunaárekstrar og ábyrgðarbrestur. Þá verða reglurnar, sem til skoðunar eru, einnig mátaðar við þær kenningar og röksemdir sem fram koma í kafla 2- 5.
Titel: |
Kerfisáhætta á fjármálamörkuðum með hliðsjón af fjármálakreppunum 1929 og 2008 ; Systemic Risk on Financial Markets with reference to the Economic Collapses 1929 and 2008
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Thelma Christel Kristjánsdóttir 1994- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2020 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|